Velkomin á vefsíðu leiklistarskólans Opnar dyr. Nú hafið þið þegar tekið í hurðarhúninn og eruð í þann veginn að opna dyrnar inn í nýja reynslu og spennandi upplifanir. Á námskeiðum hjá okkur er áhersla lögð á að verkefni og æfingar sem opna fyrir ímyndunarafl og sköpunarflæði. Á sama tíma stuðla æfingarnar að að aukinni sjálfsvitund og öryggi. Komið hefur í ljós að leikræn tjáning hentar vel til að efla jákvæð og uppbyggileg samskipti og stuðlar að hópefli í þeim hópum sem iðka hana. Leiklist er víða notuð sem tæki til að efla tilfinningaþroska og sjálfsmeðvitund fólks. Námskeiðin hjá Leiklistarskólanum Opnar dyr eru hugsuð sem leið fyrir venjulegt fólk í samfélaginu sem áhuga hefur á að auðga líf sitt með listrænu hópstarfi. Með því að bjóða bæði upp á námskeið, þar sem fólk skráir sig til þátttöku og námskeið fyrir vinnustaði viljum við svara þörf sem við álítum að sé fyrir hendi.
Opnar dyr er stofnað af Ólöfu Sverrisdóttur og Ólafi Guðmundssyni. Þau eru bæði menntaðir leikarar og hafa um árabil beitt kröftum sínum í leiklistarkennslu af ýmsu tagi. Kveikjan að stofnun fyrirtækisins voru leiklistarnámskeið fyrir fullorðna sem Ólöf hafði verið með í nokkur ár. Þau námskeið höfðu gengið vel og öðlast vinsældir. Ólafur kom til liðs við hana og í sameiningu ákváðu þau að fara af stað með frekara námskeiðahald. Sú vinna hefur gengið vel og skilað skemmtilegum og áhugaverðum námskeiðum sem öll leggja áherslu á leiklist og sjálfsmeðvitund einstaklingsins.